USE ICON WITH IMAGE.

1978 - Alþjóðakeppni í matreiðslu í Bella Center

Það var árið 1978 sem að þrír vaskir matreiðslumeistarar sem kepptu í Alþjóðakeppni í matreiðslu sem haldin var í Bella Center 4.-9. apríl 1978 í Kaupmannahöfn, en var að vísu minna í sniðum en er nú í dag og er þetta fyrsta Kokkalandslið Íslands sem vitað er um. Sigurvegarar í keppninni urðu Norðmenn, Austurríkismenn, Svisslendingar og í fjórða sæti Íslendingar.

Þá komu Danir, Vestur Þjóðverjar, Ungverjar, Svíar, Kínverjar og Indverjar.

Íslenska liðið hlutu gullverðlaun fyrir heita matinn og einnig sérstaka viðurkenningu fyrir besta kalda fatið á sýningunni í heild, það var lundi. Einungis var notað fyrsta flokks hráefni, og má þar nefna íslenskt lambakjöt. Hver þjóð útbjó tvo þjóðarrétti. Íslendingar matreiddu léttreykt lambalæri og steikt heilagfiski.

Íslenska sveitin bjóst aldrei við svona miklum árangri, þar sem þetta er í fyrsta skipti sem Íslendingar taka þátt í svona sýningu.

Að lokum má geta þess, að meðal dómaranna á sýningunni voru Ib Wessmann, yfirmatreiðslumaður á Nausti.

Meðlimir Kokkalandsliðsins árið 1978:

  • Sigurvin Gunnarsson, yfirmatreiðslumaður Hótel Sögu
  • Gísli Thoroddsen, yfirmatreiðslumaður í Brauðbæ
  • Hilmar B. Jónsson, veitingastjóri á Hótel Loftleiðum
Lesa um 1978

LIP SMACKIN' GOODNESS

Sports bar Ambience