Hvað er BYGG-appið ?
BYGG-appið er hjálpartæki við ástandsskoðun á húsum að utan og innan og til að áætla kostnað við að laga það sem laga þarf og prenta út ástandsskoðanir, viðhaldsáætlanir og þau gögn sem þarf við ákvarðanir og samninga um framkvæmdina.

Öllu sem lýst er hér á eftir er unnið í símanum, þ.e. í BYGG-appinu og er aðgangur að appinu og greiðsla fyrir ákveðinn notkunartíma þess ákveðinn og afgreiddur við pöntun. Val er um einn, tvo eða þrjá mánuði og lokast sjálfkrafa á aðganginn að tímanum liðnum.

Fjórði möguleikinn er að fá aðgang að Viðhaldskerfinu með öllu því sem það býður upp á og er þá greitt fyrir heilt ár við pöntun og í lok þess tíma fær notandinn reikning fyrir næsta ár og síðan árlega. Lesa má nánar um Viðhaldskerfið á heimasíðu Hannarrs Viðhaldskerfi fasteigna undir Tölvukerfi.

Hvaða áskriftir eru í boði?

Boðið er upp á 1, 2 og 3 mánaða áskrift af appinu sem hægt er að fá í Play Store fyrir Android og einnig í iPhone.

Smelltu hér fyrir Android

Smelltu hér fyrir IPhone

Það sem appið gerir:

  • Appið leggur til þá verkþætti sem er líklegt að þú munir velja til viðhalds.
  • Appið sýnir þér nánar hvaða verkþættir eru í hverjum viðhaldsþætti.
  • Appið veitir þér aðgang að byggingarverðskrá BYGG-kerfisins til að útbúa kostnaðaráætlanir.
  • Appið býður þér upp á að breyta texta og verðum verkþátta og bæta við nýjum verkþáttum eftir þínu höfði.
  • Appið lætur verklýsingar fylgja öllum völdum verkþáttum úr BYGG-kerfinu.
  • Appið prentar ástandsskoðunina þína með athugasemdum og myndum.
  • Appið reiknar verktakahluta út frá skráðum verkþáttum og magni þeirra.
  • Appið útbýr heildar viðhaldsáætlun með því að bæta við umsjónar- óvissu- og eftirlitsþáttum.
  • Appið prentar út verktakahluta áætlunarinnar.
  • Appið prentar út heildar viðhaldsáætlun.
  • Appið prentar fyrir þig verklýsingu hvers verkþáttar.
  • Appið prentar út útboðsform verksins (magntöluskrá).
Nýsmíði

  • Appið veitir þér aðgang að byggingarverðskrá BYGG-kerfisins til kostnaðaráætlana.
  • Appið býður þér upp á að breyta texta og verðum verkþátta og bæta við nýjum verkþáttum eftir þínu höfði.
  • Appið lætur verklýsingar fylgja öllum völdum verkþáttum úr BYGG-kerfinu.
  • Appið reiknar og prentar út kostnaðaráætlun þína.
  • Appið bætir við umsjónar- óvissu- og eftirlitsþáttum.
  • Appið prentar út heildar kostnaðaráætlun.
  • Appið prentar út verktakahluta áætlunarinnar.
  • Appið prentar fyrir þig verklýsingu hvers verkþáttar.
  • Appið prentar út útboðsform verksins (magntöluskrá).

Viðhald

  • Gefur áætluninni nafn.
  • Ferð yfir viðhaldsþættina og hakar við afgreiðslu þeirra (Yfirfarið, með eða án athugasemda).
  • Gerir athugasemd við viðhaldsþættina sem þurfa viðhalds við.
  • Tekur myndir með appinu af þeim viðhaldsþáttum.
  • Færir inn magn þeirra verkþátta og yfirferð verklýsingar.
  • Bætir við verkþáttum eftir þörfum úr byggingarverðskrá eða nýjum sem þú stofnar sjálf/ur oh magnsetur. Nýja verkþætti verðleggur þú, magnsetur og myndar og útbýrð verklýsingu þeirra ef þörf er á því.

Nýsmíði

  • Gefur áætluninni nafn.
  • Velur Flokka og verkþætti úr Byggingarverðskrá Hannarrs.
  • Færir inn magn verkþátta og yfirferð meðfylgjandi verklýsingar.
  • Bætir við verkþáttum eftir þörfum sem þú stofnar sjálf/ur, verðleggur þá og magnsetur og útbýrð verklýsingu þeirra ef þörf er á því.